22. janúar 2007 klukkan 19:47
Þá er það ljóst úrslitaleikur um áframhaldandi þátttöku í HM í handbolta ræðst í kvöld kl. 19. Ísland mætir gríðasterku liði Frakklands. Að mínu mati þarf Íslenska liðið að spila súper 6-0 vörn og markmenn liðsins þurfa að verja 23 bolta. Í sókninni þurfa strákarnir að spila agað og nýta sér liðsmunin þegar þeir eru einum fleiri. Hraðupphlaupin þurfum við að nýta 100% og um leið stoppa þeirra hraðupphlaup. Hlaupa til baka strákar. Þetta er hægt en ég hef samt ekki mikla trú á að þeir nái að peppa sig í þetta verkefni. Kannski er það kostur að það er leikur strax á eftir sem er upp á líf og dauða.
Handbolta kveða FB
Freyr Brynjarsson
05. janúar 2007 klukkan 19:37
Jæja það hlaut að kom að því að árið 2007 kæmi og nú getur maður ekki flúið það lengur að maður hættir að vera 20 og eitthvað og verð þrjátíu og eitthvað næstu 10 árin.
Jólin og áramótin voru mjög ljúf og át maður vel en samt ekki yfir sig. Fékk Hugo Boss ermahnappa frá konunni og syninum. Ég gaf konunni hálsmen og eyrnalokka ásamt því að kaupa handa henni topp sem hún notaði um jólinn. Sonurinn skemmti sér konunglega og sérstaklega á gamlárskvöld og fór ekki að sofa fyrr enn kl.2 og það var bara of mikið fyrir strákinn því hann veiktist um nóttina og hefur ekki enn jafnað sig.
Handboltinn er byrjaður eða æfingarnar byrjaðar. Fyrsti leikur er ekki fyrr en 8.feb.
HM í handbolta sem fram fer í þýskalandi byrjar 19.jan og þar verða nokkrir félagar í eldlínunni og maður vonar að sjálfsögðu að þeir nái sem lengst og ætla ég að spá þeim efstu 5 sætunum.
Bið að heilsa krökkunum í bekknum sem lásu þetta. Go 5.F
Kv. Freyr"Teacher"Brynjarsson
Freyr Brynjarsson