20. október 2006 klukkan 21:10
Í dag skrifuðum við Hrefna undir kaupsamning á 91 fermetra íbúð í Njarðvík. Erum komin með lykla og ætlum okkur að vera flutt inn fyrir mánaðamót. Verð samt að segja ykkur söguna á bak við þessa eign. Það voru par sem keyptu hana en hættu svo saman ég komst að því afhverju þau hættu saman í dag þegar við vorum að ganga frá þessu. Peningarnir sem þau áttu að fá gátu ekki farið í gegn í dag vegna þess verðbréfa deild bankans lokaði kl.14. Þetta myndi þá ganga í gegn á mánudaginn. Daman missti sig alveg og varð alveg brjáluð að fá ekki peningana strax, ég var allvarlega að spá í að troða kaupsamningnum upp í r....g.... á henni. Kenndi okkur um að við gerðum þetta viljandi og að við værum að reyna svindla á henni. Það fór svo þannig að fasteignarsalinn fékk alveg nóg af henni að hann tók út á eigin reikningi til að koma henni út. Við hlóum að þessu eftir á og skildum alveg afhverju gaurinn hætti með henni. Hann hafði á orði að hann hlakkaði til að fara heim til konunar sinnar og þakkaði fyrir að hún væri ekki svona skessa. Algjört bíó.
Annars líf og fjör. Leikur við Fylki á sunnudaginnn
Hann Andri Roland Ford litli bróður er að útskrifast úr Háskólanum á laugardaginn og því verður fámenn veisla. Einnig er hann komin með vinnu hjá Actavis, valinn úr 40 umsóknum. Flottur á því.
Kveð í bili. aju
Freyr Brynjarsson
16. október 2006 klukkan 21:12
Jafntefli í gær gegn Akureyri, í leik þar sem við áttum að vera löngu búin að klára. Áttum sjens að skora sigurmarkið í síðustu sókn leiksins en boltinn vildi ekki inn. Ég spilaði varnarhlutverk og var svona allt í lagi sáttur en að fá á sig 34 mörk er allt of mikið. Vorum ekki að vinna þetta saman sem lið varnalega. Ég setti 2 úr 2 skotum þannig að nýtingin var 100% betri en í síðasta leik :) Næsti leikur er á miðvikudaginn í bikarnum gegn Haukum 2. Það eru gömlu kempurnar í haukum.
Annars er það að frétta að við erum ganga frá kaupum á íbúð í Innri Njarðvík og það verður vonandi allt klappað og klárt fyrir næstu helgi. Þurfum að punga út 17,1 mills fyrir 91 ferm í fjórbýli. Það er þá með öllu, þ.e.a.s. fasteignagjöldum og öllu því. Þetta er ný íbúð í fjórbýli með örbylgjuofni, ísskáp og uppþvottavél. Þetta er neðri hæð þannig að pabbi verður nýttur í pallagerð eitthvert sumarið. Stefnan er að verða alveg flutt um mánaðamótin okt-nóv.
Ég fer út til Parísar helgina 4-5 nóv að spila í evrópukeppninni gegn Paris Handball og spilum svo við þá heima helgina eftir.
Nóg að gerast.
Freyr Brynjarsson
09. október 2006 klukkan 03:54
Nú eru við í Haukum búnir að spila 4 leiki 2 í deild og 2 í evrópukeppni félagsliða. Fyrsti leikurinn í deildinni var gegn ÍR og þó svo að hann hafi tapast þá átti ég ágætis leik og setti 4 mörk í næsta leik sem var gegn ítalska liðinu Conversano á ítalíu og spilaði ég fínan leik varnalega og setti eitt mark þar. Næst spiluðum við gegn Fram á útivelli og þar átti ég góðan leik sérstaklega varnalega enda spila ég aðalega vörn. En svo kom að leiknum sem var í kvöld gegn Conversano á okkar heimavelli ég átti hreint út sagt skelfilegan leik og endaði með nýtinguna 6-0. Sem betur fer var Maggi í svaða stuði í markinu og hélt okkur inn í leiknum og unnum við hann 28-26 og erum komnir áfram. Þetta er án efa lélagasti leikur minn á ferlinum og aldrei hef ég verið með svona slaka nýtingu, það er eins gott að maður sýni eitthvað í næsta leik sem verður gegn Akureyri á heimavelli næsta laugardag.
Annar sem er í fréttum er að Brynjar Dagur er núna veikur og verð ég heima með hann á morgun. Starfsdagur í vinnunni þannig að ég fæ lítið samviskubit við að mæta ekki í vinnu. :)
Erum líklega að fara kaupa í Innri Njarðvík í þessari viku, allavegna setja tilboð. Nánar um það síðar.
Kv.Freyr"ruglnýting"Brynjarsson
Freyr Brynjarsson