Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Fín helgi að baki

30. júlí 2006 klukkan 21:18

Fótbolti
Á föstudagskvöldinu spilaði ég fótboltaleik með GG gegn Ægi Þorlákshöfn og unnum við 3 -0 og að sjálfsögðu spilaði ég og skoraði fyrsta markið á 4 mín leiksins og er þá komin með 4 mörk í 8 leikjum og hef spilað nánast alla leikina á kantinum, bæði hægri og vinstri kanti.

Handbolti
Á laugardeginum vöknuðu við í fjölskyldunni snemma og héldum af stað í bæinn en ég var að fara spila í strandhandboltamóti sem fram fór í Nauthólsvík. Við áttum fyrsta leik kl. 10 gegn liði sem samanstóð af leikmönnum Fjölni. Við unnum þann leik í nokkuð jöfnum leik.
Reglurnar í strandhandbolta 
Það er kannski rétt að koma að reglunum í strandhandbolta. Þær helstu eru þær að ef markmaður skorar/eða marðurinn sem kemur inná fyrir hann þá eru það 2 mörk, það eru líka tvö mörk fyrir sirkusmörk og víti.
Aftur í riðlakeppnina 
2.leikurinn var gegn WorldClass en þar var meðal annars Viggóson a.k.a. herra Ísland !! Þessi leikur var engin hindrun fyrir okkur í Haukavélinni. 3.leikurinn var gegn HK kvenna, en ég ákvað að sinna konunni  aðeins og sleppti að spila hann og fór í verslunarleiðandur með eiginkonunni. Það var engin aumingi sem kom í minn stað en það var Gilzenegger sem kom og spilaði þennan leik með okkur Haukunum og stóð sig víst bara með stakri príði.
8-liða úrslit
Við mættum liði sem samanstóð af dómurum og þjálfurum í deildinni og var þetta nokkuð öruggt allann tímann.
Undanúrslit
Í undanúrslitum mættum við liði sem hét Tantra en var með leikmönnum HK manna innanborðs og unnum við hann líka án vandkvæða.
Úrslitaleikurinn
Í þessum leik mættum við FH og var þetta hörkuleikur sem vannst bara í lokinn. Semsagt Strandhandboltameistari 2006.

Bío og djamm
Eftir þessa handboltatörn fórum við Hrefna og systir hennar Rakel í bío á myndina Pireats og the carribien 2 og var það bara helv.. góð ræma og hlakka ég til að sjá 3 myndina. Eftir bíoið fórum við á lokahóf strandhandboltans sem var haldið á skemmtistaðnum Viktor. Seinna um kvöldið fórum við svo á Oliver og skemmtum okkur vel þar. Áður en haldið var heim var komið við á Nonna og fengið sér einn vel steiktan bát,  (annað en hjá Hlölla þar sem þeir flýta sér svo mikið að áleggið er hrátt) NONNI  er langtumbetri. Sem sagt helv. fín helgi að baki.

Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Giftingamyndir

21. júlí 2006 klukkan 23:43
Já það eru nokkrir búnir að spyrja um hvenær brúðkaupsmyndir koma á netið. Nú er hægt að skoða myndir á heimasíðunni hans Brynjars Dags á barnalandi. Verði ykkur að góðu.Svalur
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Gifting

20. júlí 2006 klukkan 02:50

Þá er það staðfest, strákurinn er gengin út. Í dag er ég giftur maður og hlakka ég til að takast á við hjónabandið. Dagurinn var góður í alla staði nema hvað veðrið var ekki alltaf upp á sitt besta. Ég var nokkuð rólegur yfir þessu öllu saman þangað til ég sá Hrefnu koma inn kirkjugólfið og sló hjartað mitt nokkuð ört þá stundina en ekkert á við þegar við stóðum fyrir framan prestinn og hann spurði okkur hvort við vildum hvort annað, hélt að hjartað ætlaði útúr mér. Eftir athöfnina fórum við inn í bílinn hans Svans sem var Dodge 1954 og á leiðinni til ljósmyndarans spilaði hann 60 tónlist, algjör snilld. Hjá ljósmyndaranum vorum við mynduð ásamt Brynjari Degi en Rakel systir hennar Hrefnu kom með hann. Það var rigning allann tíman á meðan á myndatökuni stóð nema alveg í lokin en þá birti til og við náðum nokkrum góðum myndum úti. Veislan gekk eins og í sögu með Samma og Benný sem veislustjórar. Magnús Þór bróðir hans Pabba söng fyrir okkur lagið sitt Ást og var það frábært. Alls mættu um 120 manns en það voru um 140 sem við bjuggumst við. Eftir veisluna fórum við Hrefna á Hótel Geysi og gistum þar í brúðkaupssvítuni. Eins og sést á myndinni hér að neðan þá var vel tekið á móti okkur með Kampavíni og ávöxtum ásamt að það var baðkar með nuddi sem rúmaði tvo. Daginn eftir fórum við að skoða Geysi ásamt því að skoða Gullfoss. Við hittum svo mömmu mína en hún var að passa Brynjar Dag. Hittum þau á Sauðholti en þar er Örn bróðir hennar mömmu að byggja hús. Þar var Brynjar Dagur í góðu yfirlæti með hestunum. Við gistum svo sunnudagsnóttina í sumarbústaði ömmu og afa Hrefnu. Við viljum þakka öllum sem mættu og vonum að allir hafi skemmt sér jafn vel og við.



Kv. Eiginmaðurinn hennar Hrefnu.

Freyr Brynjarsson
2 athugasemdir

Steggjapartý

10. júlí 2006 klukkan 22:43
Þá er búið að steggja kallinn, var sóttur af honum Guðmundi a.k.a. Biffi og við fórum sem leið lá í hafnafjörðinn. Fyrsti stoppustaður var í Firðinum (verlsunarmiðstöð) þar var ég látinn fara í sundbol úr Suðurbæjalauginni ásamt kanínueyrum og bleikri slaufu. Í þessu átti ég svo að dansa fyrir pening. Eftir þetta kanínuflipp var farið í Suðurbæjarlaugina og ég látin fá skýlu til að fara ofaní og það var ekki nei venjuleg skýla heldur G-strengur af henni Hrefnu Skömmustulegur. Þarna var ég látinn gera ýmsar frjálsíþróttaæfingar á g-streng einum saman. Þetta hefði verið alt í lagi ef það hefði ekki verið svona gott veður og FRÍTT Í SUND þennan dag. Sundlaugin var troðfull og alveg ljóst að það verður eitthvað í það að ég fari í þessa laug aftur.

Næst lá leiðinn til Njarðvíkur þar sem við fórum í Go-cart og að sjálfsögðu vann ég það, sammi í öðru, Andri bró í þriðja, Biffi í fjórða og Arnar í fimmta. Biffi heldur því samt fram að hann hafi unnið í sínum þyngdarflokki.Gráta

Eftir Go-cartið fórum við í Pool á nýja staðnum í Keflavík og Öddi hitti okkur þar Það voru svo Sammi og Arnar sem unnu pookeppninar.
Farið var svo á Pizza 67 og fengið sér góðar lummur.
Kl.18 hófst svo úrslitaleikurinn í HM og við horfðu á hann á Traffic í Keflavík og þar var ákveðið að ég skyldi drekka snaffs við hvert mark í leiknum. (stórmistök að samþykkja það) Biffi byrjaði á því að gefa mér Stroo sem er ógeðfeldasti drykkur sem hægt er að fá sér. Eins og áður segir þurfti ég að drekka við hvert mark í leiknum og eins og allir vita fór leikurinn í vítaspyrnukeppni og ég þurfti að drekka 8 staup á innan við 10 mín. Ég var svo komin heim um 21 og á rassgatinu og þurfti nauðsynlega að skoða klósettskálina nánar svona 3-4 sinnum það kvöld. Dó svo dauðamínum í sófanum.
Í heildina skemmtilegur dagur og jafnframt hræðilegur.

Kveð í bili Freyr"næstum giftur" Brynjarsson
Freyr Brynjarsson
2 athugasemdir

Draumamark + Hrefna Gæsuð

08. júlí 2006 klukkan 04:30
Já ég átti svo sannalega draumamark í kvöld þegar við í GG spiluðum við Afríku hér í Grindavík. Hafði potað einu inn rétt áður (týpíst Ian Rush mark). En aftur að þessu marki, ég vann boltann á kantinum og rak boltann inn að miðju en var samt meira vinstramegin. Ég sá markmannin illa staðsettann og tók því á skarið og snéri boltann þéttings fast efst upp í markhornið af 35 metra færi. Semsagt upp í skeitunum lág tuðrann.

Hrefna var sótt hér heima af Rakel, Benný og Þórunni Evu. Þær klæddu hana upp eins og myndin hér sýnir. Þær ætluðu svo með hana í bæin og láta hana dreyfa smokkum en þær eru svo vitlausar þessar stelpur að þær keyptu óvart SLEIPIEFNI, haha kvenfólk.

Á meðan ég spilaði þennan fótboltaleik komu mamma mín og Andri bró ásamt Emmu Ingu og pössuðu Brynjar Dag. Hann skemmti sér konunglega og er ávalt hrókur alls fagnaðar.


Markamaskínan kveður að sinni. a.k.a. Ian Rush
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd