Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Innan við 3 vikur í brúðkaup

27. júní 2006 klukkan 02:32
Það fer að koma að stóru stundinni, aðeins 3 vikur í giftingu okkar Hrefnu. Fórum í dag í bæinn að stússast aðeins, meðal annars áttum við samtal við einn af aðstandendum Brúðkaupsþáttarins JÁ og viti menn við munum koma fram í honum. Fáum helling afslætti og fríðindi. Fórum einnig að láta Brynjar Dag máta fötin sín sem hann verður í, hrikalega flottur eins og pabbi sinn ;)
Annars bara HM og hef nóg að horfa á.

Kveðja Sven Goran
Freyr Brynjarsson
3 athugasemdir

Hvert hefur þú farið?

23. júní 2006 klukkan 03:14
Hérna er kort sem ég stal hjá henni frænku minni Geirþrúði, eða stal öllu heldur hugmyndinni. Fór og gerði mitt kort og hér sjáiði hvert ég hef farið í heiminum. Ég hef farið til 21 lands og er það 9%af löndum heimsins.

Farðu inn á þennan tengil: http://douweosinga.com/projects/visitedcountries
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Súpersub

19. júní 2006 klukkan 02:35
Já haldiði að kallinn hafi ekki setta´ann í leik með GG gegn KFS. Ég kom inná á 70 mín og setti úrslitamarkið á 83 mín og sigur 3-2 staðreynd. Við Komumst í 2-0 en þeir jöfnuðu 2-2 og þá var bara eitt til ráða og það var að setja markamaskínuna inná :)

Annars er ég á fullu að fylgjast með HM og er ég að taka þátt HM leik á www.hm2006.net þar fær maður 1 stig fyrir rétt gisk en maður fær 3 stig ef maður hefur markatöluna líka rétta. Ég er þessa stundina í 49 sæti en var í gær í19 sæti. Er reyndar bara að einbeita mér að kennarardeildinni. Þar eru Öddi, Arnar, Raggi og ég að keppa. Ég er efstur sem stendur ásamt Ödda með 29 stig.

Andri bróðir kíkti í heimsókn í dag á 17milljóna kr BMW. Hann fékk hann að láni frá yfirmanni sínum sem á Múrbúðina. Svaka kerra, Siggi tengdó fékk að prufukeyra og hélt ekki vatni yfir honum. Gaf svo stráknum heimabío sem hann átti í bílskúrnum.

Man ekki meira, kveð í bili.
Kveðja Strikerinn
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd

Lost og 24

12. júní 2006 klukkan 05:35
Þá er maður búin að horfa á bæði 24 seríu 5 og Lost seríu 2 og alltaf er maður ánægður með Jack Bauer og félaga. En Lost aftur á móti er að verða dálítið þreytandi en samt getur maður ekki hætt að horfa. Var að horfa á síðasta þáttinn í seríu 2 og að sjálfsögðu endar sá þáttur þannig að maður er uppfullur af nýjum spurningum þó svo að fullt af spurningum frá seríu 1 og 2 er enn ósvarað(t.d. skrímslið!!?).  Semsagt sería 3 á leiðinni af Lost. Ég fór á heimasíðu abc og fann þar áhugavert efni, en það eru framleiðendur þáttanna sem eru með lítinn 30mín þátt um hvern lostþátt. Það sem ég hlustaði á var þáttur um lokaþáttinn og þar var nokkrum spurningum svarað eða kannski ekki svarað en samt sem áður gefið til kynna. Hérna er linkurinn fyrir ykkur sem hafið áhuga : http://abc.go.com/primetime/lost/podcasts/108849.html

Þeir töluðu um að 3 sería myndi koma í sept-okt. og þá myndu koma 6 þættir svo myndu þeir fara í 12 vikna frí og koma aftur í febrúar með restina (17þætti).

Kv. Einn alveg Lost
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd

Úrslitin ráðin á HM

07. júní 2006 klukkan 22:50

Já HM í þýskalandi er að hefjast á föstudaginn og menn eru út um allann bæ að spá hinum og þessum titlinum og þá aðalega Brasilíumönnum. Ég og Brynjar Dagur fengum blað heim frá hússmiðjunni í dag með öllum leikjunum. Ég og Brynjar Dagur settumst niður og komust að þeirri niðurstöðu að Tékkland vinnur HM eftir hörkuleik við Brasilíu, Þjóðverjarnir verða í 3.sæti eftir sigur gegn Englandi. Annars liggur þetta svona fyrir:

A-riðill                                            B-riðill                                                    C-riðill
Þýskaland í 1.sæti                         England í 1.sæti                                   Argentína í 1.sæti
Pólland í 2.sæti                             Svíþjóð í 2.sæti                                     Holland í 2.sæti
                                            England verður að sigra í þessum riðli
                                            annars mæta þeir Þýskal. í 16-liða úrsl. 
                                            og þá munu þeir detta út.

D-riðill                                             E-riðill                                                   F-riðill
Portúgal í 1.sæti                            Tékkland í 1.sæti                                  Brasilía í 1.sæti
Íran eða Mexíco í 2.sæti                Ítalía í 2.sæti                                       Króatía í 2.sæti
                                             Ef Tékkland nær ekki 1.sæti mæta
                                             þeir Brasilíu og detta út.Annars fara 
                                             fara þeir alla leið og sigra HM  

G-riðill                                             H-riðill
Frakkland í 1.sæti                          Spánn í 1.sæti
Kórea í 2.sæti                               Úkraína í 2.sæti


Þeir riðlar sem verða mest spennandi eru B,C og E riðill.


16-liða úrslit verða þá eftirfarandi:

Þýskaland - Svíðþjóð = Þýskaland kemst áfram

Argentína - Íran/mexico = Argentína öruggir áfram

England - Pólland = England öruggir áfram
Portúgal - Holland = Erfiður leikur en held að Holland fari þetta á hefðinni
Tékkland - Króatía = Tékkland sigrar
Frakkland - Úkraína = Frakkland sigrar
Brasilía - Ítalía = Brasilía sigrar
Spánn - Kórea = Spánn sigrar

8-liða úrslit verða eftirfarandi:
Þýskaland
- Argentína = Þýskaland sigrar
Tékkland - Frakkland = Tékkland sigrar
England - Holland = England sigrar
Brasilía - Spánn = Brasilía sigrar

Undanúrslit verða þá eftirfarandi:
Þýskaland - Brasilía = Brasilía sigrar
England - Tékkland = Tékkland sigrar

3.sæti
Þýskaland - England = Þýskaland sigrar

1.sæti
Brasilía - Tékkland = Tékkland sigrar

Eins og ég sagði þá er þetta klárt mál og Brynjar Dagur er algjörlega sammála þessu mati.

Kv. SPEKINGARNIR TVEIR



Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Borðum sand, borðum sand

06. júní 2006 klukkan 23:04
Í dag vöknuðum við Brynjar Dagur kl.8:30. ,Hrefna fór að vinna og er að vinna alla þessa viku en er í fríi á fimmtudaginn. Kl. 11:00 fórum við svo út á leikvöll þar sem við skemmtum okkur konunglega og Brynjar Dagur varð náttúrulega að smakka á sandinum og þótti bara ágætur, var alla vegna ekkert að spýta honum útúr sér.


Á morgun ætlum við Brynjar Dagur að fara í heimsókn á leikskólann Laut sem er einmitt leikskólinn sem Brynjar Dagur byrjar í næsta haust.

Bless Kex og sandur
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd

Strákurinn stakk af

04. júní 2006 klukkan 03:28

Hvað haldiði að hafi gerst í kvöld,jú Brynjar Dagur komst út án þess að við tókum eftir. Hurðinn opnaðist á einhvern hátt og minn maður hefur rokið út á náttfötunum. Við fundum hann nokkuð fljótt en maður fékk ekkert smá í magann. Ég náði honum á hlaupum fyrir handan annað hornið á blokkinni á harðarspretti og ætlaði sko ekki að láta ná sér. Hann er að verða fljótari en pabbi sinn í sprettunum!! Brosandi

Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

SUMARFRÍ!!

03. júní 2006 klukkan 05:37
Já loksins er þessu skólaári lokið og er ég mjög sáttur við það. Þetta er búið að vera hálf skrítið ár í kennslu. Var í fæðingarorlofi í byrjun þessa árs og var því dálítinn tíma að koma mér af stað þegar ég loks kom til baka. En ég ætla mér að loka þessum kafla og horfa fram á við. Nú er sumarið framundan og HM í knattspyrnu að byrja, hugsa að maður horfi á eitthvað af því Hlæjandi.
Eitthvað á maður eftir að skella sér líka í golf og svo verður maður að æfa fyrir komandi tímabil í handboltanum. Er núna að æfa fótbolta með 3.deildarliði GG og erum við í A-riðli. Í mínum fyrsta leik unnum við 5-0 og spilaði ég síðustu 10 mín. Kem til með að lyfta með fótboltanum, þannig að ég kem þéttur í haust. 

Brynjar Dagur og ég komum til með að eyða miklum tíma saman í sumar og það er skemmtilegt að segja frá því að ég var að kenna honum að telja 1-2-3 og nota puttana með. Byrjaði á þessu í gærkveldi og hann var búin að ná þessu í kvöld þegar ég var að svæfa hann. Snillingur hann sonur minn.Svalur

kveð að sinni sofanaðu ekki með hann ....Glottandi
FB
Freyr Brynjarsson
2 athugasemdir