Silfur í þremur mótum í ár
Er svona að hugsa mín mál þessa daganna hvort þetta verði mitt síðasta tímabil í boltanum. Er búin að vinna allt sem hægt er að vinna nema kannski þennan deildarbikar sem er í boði í fyrsta skipti í ár.
Mitt fyrsta tímabil var 96-97 átti þá einn leik. Valur lenti þá í 7.sæti og duttu út í 8 -liða úrslitum gegn Haukum.
Tímabilin með Val
97-98 varð ég Íslands og bikarmeistari með Val
98-99 9.sæti í deild, engin úrslitakeppni
99-00 9.sæti í deild , engin úrslitakeppni
00-01 7.sæti í deild, duttum út undanúrslitum gegn Haukum
01-02 2.sæti í deild, töpuðum fyrir Ka í úrslitum eftir að hafa leitt einvígið 2-0.
02-03 2.sæti í deild, töpuðum fyrir Umfa í undaúrslitum bikars, duttum út gegn ÍR í undanúrslitum.
03-04 2.sæti í deild, töpuðum gegn fram í undanúrslitum bikars og töpuðum 3-0 gegn Haukum um íslandsbikarinn.
Tímabilin með Haukum
04-05 1.sæti í deild, Íslandsmeistari á afmælisdaginn 5.maí 3-0 sigur gegn ÍBV
05-06 2.sæti í deild, 2.sæti í bikar, deildarbikar???
Hefði átt að hætt í fyrra, byrja á titlum og enda á titlum!!
Kannski ég taki eitt tímabil í viðbótt og vinn allar þessar dollur í einum rikk!!

Ég og Brynjar Dagur 5.maí 2005 Íslandsmeistarar (good times)
2 athugasemdir


Las Vegas 3.sería er þáttaröð sem ég og konan erum að horfa á núna og er ég með alla þættina, það er einmitt verið að sýna þessa seríu á stöð 2. Vildi bara mæl með þessum þáttum.
Þá er það orðið nokkuð ljóst að við í Haukunum verðum að láta okkur 2.sætið duga þar sem Fram vann Hk í dag. Það er ein umferð eftir en Fram á Víking/fjölni eftir í síðustu umferð og er hægt að bóka sigur hjá frömurum.
