Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Hann á afmæli í dag!!!

05. maí 2006 klukkan 14:09

Þá er maður orðin 29 ára og þetta er fljótt að gerst og ekki líður á löngu þangað til maður verður ekki lengur á tuttuguogeitthvað heldur verður maður þrjátíuogeitthvað. Þetta er að verða búið!!!!

Nei nei lífið rétt að byrja og ef ég tek Halldór Ingólfs mér til fyrirmyndar þá á ég 11 ár eftir í boltanum Svalur. Einmitt!!!!!

Annar ætla ég að halda upp á þetta með sigri á Val í kvöld og fá þar með 3 leikinn að Ásvöllum á sunnudaginn.
Ég fer á laugardaginn út að borða og í bío með konunni og held ég upp á afmælið formlega þá.

Kv. Old Frazer.
Freyr Brynjarsson
3 athugasemdir

Silfur í þremur mótum í ár

30. apríl 2006 klukkan 02:13
Nú er nóg komið, einn titill eftir þ.e.a.s. deildarbikarinn og er ég ekki í nokkrum vafa um að við vinnum hann. Erum búnir að vera í 2.sæti í öllum mótum og eitt mót eftir. Þetta minnir á Fram tímabilið 97-98 þegar þeir töpuðu fyrir Val í íslands og bikarúrslitum og glötuðu svo deildartitlinum í síðustu umferð og KA unnu hann.

Er svona að hugsa mín mál þessa daganna hvort þetta verði mitt síðasta tímabil í boltanum. Er búin að vinna allt sem hægt er að vinna nema kannski þennan deildarbikar sem er í boði í fyrsta skipti í ár.
Mitt fyrsta tímabil var 96-97 átti þá einn leik. Valur lenti þá í 7.sæti og duttu út í 8 -liða úrslitum gegn Haukum.
Tímabilin með Val
97-98 varð ég Íslands og bikarmeistari með Val
98-99 9.sæti í deild, engin úrslitakeppni
99-00 9.sæti í deild , engin úrslitakeppni
00-01 7.sæti í deild, duttum út undanúrslitum gegn Haukum
01-02 2.sæti í deild, töpuðum fyrir Ka í úrslitum eftir að hafa leitt einvígið 2-0.
02-03 2.sæti í deild, töpuðum fyrir Umfa í undaúrslitum bikars, duttum út gegn ÍR í undanúrslitum.
03-04 2.sæti í deild, töpuðum gegn fram í undanúrslitum bikars og töpuðum 3-0 gegn Haukum um íslandsbikarinn.

Tímabilin með Haukum
04-05 1.sæti í deild, Íslandsmeistari á afmælisdaginn 5.maí  3-0 sigur gegn ÍBV
05-06 2.sæti í deild, 2.sæti í bikar,  deildarbikar???
Hefði átt að hætt í fyrra, byrja á titlum og enda á titlum!!
Kannski ég taki eitt tímabil í viðbótt og vinn allar þessar dollur í einum rikk!!

Ég og Brynjar Dagur 5.maí 2005 Íslandsmeistarar (good times)
Freyr Brynjarsson
2 athugasemdir

Gölluð könnun búin

27. apríl 2006 klukkan 17:22

Könnunin sem fram fór hér síðustu viku var gölluð þar sem lesblindur fæðingarhálviti kaus sitt lið all oft. Gummi verð samt að óska þér til hamingju með þitt lið(arsenal) fyrir að vera komnir í úrslit meistaradeildarinnar. Svona þér og öðrum til uppfræðslu þá verða Arsenal að vinna þann leik til að fá að taka þátt í meistaradeildinni á næsta ári, þeir taka þá sæti Tottenham sem er í 4.sæti í deildinni en Arsenal í 5.sæti. Ef Arsenal vinnur ekki komast eins og áður segir ekki í keppnina á næsta ári og þeir missa sinn besta mann yfir til Barcelona (Henry). Þannig að það liggur mikið undir.

NÚVERNADI MEISTARAR ERU LIVERPOOL OG HAFA ÞEIR UNNIÐ ÞENNAN BIKAR 5 SINNUM OG ÞAR MEÐ TIL EIGNAR.


Kv. R.Fowler

Freyr Brynjarsson
2 athugasemdir

Starfsmannaviðtal

27. apríl 2006 klukkan 05:21
Á morgun fer ég í starfsmannaviðtal í vinnunni, og ætla ég aðeins að láta heyra í mér. Það eru nefnilega nokkur atriði sem ég er ekki sáttur við en ég ætla ekki að fara frekar út í það hér.

Í annað þá var veðrið helv... gott í dag og það er á svona dögum sem sundkennsla er ljúf og er bara mjög skemmtileg. Sérstaklega er fjör að kenna þessum yngstu.

Liverpool vann í kvöld West ham en þessi lið mætast einmitt í úrslitaleik fa - bikarsins 13.maí. Cisse drullaðist til að skora og meira segja skoraði hann 2. Minn maður í þessu liði er Fowler og vona ég að Liverpool semji við kallinn aftur.

Handboltinn heldur áfram og síðasti leikur í íslandsmótinu verður á laugardaginn við FH. Svo er deildarbikar þar sem við mætum Val í undanúrslitum. Ætlum okkur að vinna það mót enda búnir að lenda í 2.sæti í allann vetur, töpuðum meistararmeistaranna fyrir ír, töðuðum bikarúrlitum fyrir stjörnunni og svo núna íslandstitlinum fyrir fram. Gaman gaman.

Kveðja Patrick Ewing
Freyr Brynjarsson
3 athugasemdir

Boðskort í brúðkaupið

25. apríl 2006 klukkan 04:22
 Nú fer að líða að því að við sendum út boðskortin í brúðkaupið okkar. Erum að nýta okkur design.is þegar við veljum útlitið á kortunum. Við pöntum um 90 boðskort og eru um 160 manns boðið í þetta blessaða brúðkaup. En það verða svona um 100-120 sem mæta að öllum líkindum. Hellings peningur sem fer í svona dæmi.$$$$$$



Tilvonandi eiginmaður kveður í bili.




Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Las Vegas og fl. þættir

23. apríl 2006 klukkan 19:14
Las Vegas 3.sería er þáttaröð sem ég og konan erum að horfa á núna og er ég með alla þættina, það er einmitt verið að sýna þessa seríu á stöð 2. Vildi bara mæl með þessum þáttum.
Aðrir þættir sem ég hef fengið og er þessa dagana að horfa á er:
Prison brake
24
Lost 2 sería.
Allt eru þetta magnaðir þættir og hvet fólk til að horfa á þessa þætti.

Jack Bauer kveður í bili
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Skrifið í gestabókin!!!!

23. apríl 2006 klukkan 07:11

Er að gera smá athugun hversu margir skoða þetta blogg, veit um tvo sem kíkja ekki reglulega (Njörður og Gummi) eru fleiri óhamingjusamar sálir þarna úti sem hafa dottið inn á þessa síðu?
SKRIFIÐ Í GESTABÓKINA NÚNA!!! OG EKKERT MÚÐUR.


Steven Seagal biður að heilsa í bili

Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

2.sætið í ár

23. apríl 2006 klukkan 01:07
Þá er það orðið nokkuð ljóst að við í Haukunum verðum að láta okkur 2.sætið duga þar sem Fram vann Hk í dag. Það er ein umferð eftir en Fram á Víking/fjölni eftir í síðustu umferð og er hægt að bóka sigur hjá frömurum.


Okkar eini sjéns á bikar verður deildarbikarinn þar sem 4 efstu liðin spila í úrslitafyrirkomulagi og fáum við Val í undanúrslitum og það lið sem vinnur fyrr 2 leiki fer í úrslit.
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Fjölskyldan mín

22. apríl 2006 klukkan 15:48
Ég á konu sem heitir Hrefna Björk Sigurðardóttir og eigum við saman hann Brynjar Dag.

Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Ný og flott síða

22. apríl 2006 klukkan 14:47

Já er að hugsa mér að koma mér upp þessari uppsetningu, hvernig líst mönnum á??

Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd