06. júní 2006 klukkan 23:04
Í dag vöknuðum við Brynjar Dagur kl.8:30. ,Hrefna fór að vinna og er að vinna alla þessa viku en er í fríi á fimmtudaginn. Kl. 11:00 fórum við svo út á leikvöll þar sem við skemmtum okkur konunglega og Brynjar Dagur varð náttúrulega að smakka á sandinum og þótti bara ágætur, var alla vegna ekkert að spýta honum útúr sér.

Á morgun ætlum við Brynjar Dagur að fara í heimsókn á leikskólann Laut sem er einmitt leikskólinn sem Brynjar Dagur byrjar í næsta haust.
Bless Kex og sandur
Freyr Brynjarsson
04. júní 2006 klukkan 03:28
Hvað haldiði að hafi gerst í kvöld,jú Brynjar Dagur komst út án þess að við tókum eftir. Hurðinn opnaðist á einhvern hátt og minn maður hefur rokið út á náttfötunum. Við fundum hann nokkuð fljótt en maður fékk ekkert smá í magann. Ég náði honum á hlaupum fyrir handan annað hornið á blokkinni á harðarspretti og ætlaði sko ekki að láta ná sér. Hann er að verða fljótari en pabbi sinn í sprettunum!! 
Freyr Brynjarsson
03. júní 2006 klukkan 05:37
Já loksins er þessu skólaári lokið og er ég mjög sáttur við það. Þetta er búið að vera hálf skrítið ár í kennslu. Var í fæðingarorlofi í byrjun þessa árs og var því dálítinn tíma að koma mér af stað þegar ég loks kom til baka. En ég ætla mér að loka þessum kafla og horfa fram á við. Nú er sumarið framundan og HM í knattspyrnu að byrja, hugsa að maður horfi á eitthvað af því

.
Eitthvað á maður eftir að skella sér líka í golf og svo verður maður að æfa fyrir komandi tímabil í handboltanum. Er núna að æfa fótbolta með 3.deildarliði GG og erum við í A-riðli. Í mínum fyrsta leik unnum við 5-0 og spilaði ég síðustu 10 mín. Kem til með að lyfta með fótboltanum, þannig að ég kem þéttur í haust.
Brynjar Dagur og ég komum til með að eyða miklum tíma saman í sumar og það er skemmtilegt að segja frá því að ég var að kenna honum að telja 1-2-3 og nota puttana með. Byrjaði á þessu í gærkveldi og hann var búin að ná þessu í kvöld þegar ég var að svæfa hann. Snillingur hann sonur minn.

kveð að sinni sofanaðu ekki með hann ....

FB
Freyr Brynjarsson
28. maí 2006 klukkan 15:51
Já það var farið í óvissuferð með Haukum. Mæting var að Ásvöllum 11:15 og lagt af stað í rútu í Grafavogin þar sem við fórum á jetski og var það hel... gaman. Eftir það var farið að Álverinu í hafnaf. keyrt yfir kvartmílubrautina og þá komum við að svæði sem var í eigu skotfélags hafnafjarðar. Þetta var svaka stuð en þarna fengum við að skjóta skífur sem komu á fullri ferð út úr kofum. Ég tók 12 skot og hitti 7, hitti úr 4 síðustu skotunum. Er alvarlega að hugsa um að fara æfa þetta og komast á Olympíuleikanna

. Eftir þetta fórum við svo í Bláa Lónið. Þar hittum við á FH-ingana en þeir voru komnir í góðan gír eftir daginn. Þegar nokkrir bjórar voru búnir í blá lóninu þá var haldið af stað aftur í bæinn og haldið til Birkis Ívars þar sem við borðuðum dýrindis mat frá veisluvagninum. Það er kokkur sem kemur á bíl og eldar á staðnum, algjör snilld. Ég og Hrefna fórum svo heim eftir matinn þar sem við gátum ekki beðið um pössun 3 laugardaginn í röð.
Kveð í bili saddur og sáttur.
P.s. Gummi þú færð engu ráðið um piparsveinaveisluna
Freyr Brynjarsson
20. maí 2006 klukkan 14:47

Þá er það 99% að ég verð áfram í haukum næsta tímabíl. Læt vera 1% sem ég get hlaupið upp á ef eitthvað gerist. Verð í fótboltanum í sumar með GG (golfklúbbur Grindavíkur) sem er 3.deildar lið hér í Gríndavík.
Var á lokahófi Hauka í gærkveldi og þar fengum við loksins gullið um hálsin, en HSÍ sendi medelíur fyrir deildarbikarinn. Svo í lokin var atriði frá m.fl.kvk með smá hjálp frá Arnari P og Birkiri Ívari. Ein daman hjá stelpunum kom inn í salinn á mótorfáki í gervi Silvíu Nætar. Var þarna með atriði sem var bara hel.. gott, skilirdu. Birkir Ívar og Arnar P léku svo Homma og Nammi. Voru í gyltum þröngum nærbuxum, ógeðslegt en samt flott

. Vinur minn hann Njörður kom með mér og fórum við svo niðrí bæ og kíktum á Hressó. Þar sáum við Ásgeir Kolbeins með vélina og þá varð okkur flökurt og ákváðum að drífa okkur heim um kl.02.
Í dag er útskrift hjá systur hennar Hrefnu og heitir hún Rakel. Í kvöld förum við Hrefna til Akranesar í 30 afmæli hjá honum Ödda vini mínum úr Kennó. Brynjar Dagur verður hjá tengdó og gistir þar. Spurning hvort hann vakni kl. 06 eins og þegar hann gisti hjá þeim síðast

.
Silvía Nótt segir fucking bless. AJU
Freyr Brynjarsson
17. maí 2006 klukkan 19:07
Fór í jarðaför í gær hjá honum John J. Cramer, en hann var maður Ósk systur hans pabba míns. John lést 7.maí síðasliðin af slysförum. Blessuð sé minning hans. Veit að hann og Simbi afi skemmta sér konunglega á sínum stað.
Ég hef ekki farið í margar jarðafarir, fór hjá honum Simba afa fyrir 4 árum. Það á ekki við mig að fara í jarðafarir frekar en ykkur hin kannski. Ég átti hrikalega erfitt með mig og uppgötvaði að gríðarlegrar einbeitingu er þörf við svona lagað. Ég var oft gráti næst en náði að róa mig nokkrum sinnum niður. Það var svo í lokin þegar John var borin út að maður gat ekki meira og tárin
hrundu.
Í jarðaförum er nauðsynlegt að koma með snítibréf, þó þú þekkir viðkomandi lítið eru svona athafnir gríðalega sorgmæddar og smitar annar grátur og sorg oft út frá sér.
Ég, Hrefna og Brynjar Dagur viljum enn og aftur senda Ósk og hennar nánustu alla okkar samúðarkveðjur. Big John var frábær náungi og verður hans sárt saknað.
Verð að minnast á eitt hér lokin og það er að ég fór til Ósk fyrir jarðaförina og þegar ég kom inn sá ég að ég hélt John að klæða sig. Ég missti nærrum því andlitið og hélt í raun að mig væri að sjá ofsjónir. En þetta var þá bróðir hans Johns sem býr í USA. En VÁ hvað þeir eru líkir.
Freyr Brynjarsson
12. maí 2006 klukkan 14:08
Já við kláruðum þetta í gærkveldi eftur tvíframlengdan leik og uppskárum loksins bikar eftir allt erfiðið á þessu tímabili. Tap í meistarameistaranna, tap í bikarúrslitum og tap í íslandsmótinu á einbyrgðis viðureignum. En loksins gull, það var ekki hægt að fara í sumarfrí án þess að klára eina dollu.
Ég kom inná línuna í gær aðeins til að tæta í vörn Fylkis. Svo spilaði ég fyrir framan á heimi og kláraði það bara ágætlega þó ég segi sjálfur frá.
Nú er bara spurning hvað maður gerir næsta ár, hættir maður eða heldur maður áfram. Formaðurinn er búið að tala við mig um að ég verði að halda áfram en ég ætla ekki að ákveða mig strax heldur fara í fótboltann hér í Grindavík og spila eins og síðasta sumar með GG í 3.deildinni.
Kveð að sinni, sofnaðu ekki með hann inni!!!!!!!!(Gummi)
11. maí 2006 klukkan 03:06
Já það má segja að það hafi komið smá hnokkrar á brúðkaupsundirbúningin í vikunni. Það kom í ljós þegar við höfðum látið prenta boðskortin að við höfðum sett vitlaust nafn á kirkjuna sem við ætluðum að nota. Við settum Fríkirkju Hafnafjarðar á kortið en átti að vera þjóðkirkja hafnafjarðar. Í staðinn fyrir að láta alla vita eða fá ný kort eða krota yfir í kortið þá fór ég af stað og reddaði bara Fríkirkjunni í staðinn og sem betur fer reddaðist það og var í raun bara snilld því hún er miklu flottari og hlýlegri en hin kirkjan.
Eins og ég hef alltaf sagt "Þetta reddast allt saman"
Kveðja Reddarinn
Freyr Brynjarsson
08. maí 2006 klukkan 04:26

Valsarar voru lagði í dag að Ásvöllum og spilaði ég fyrir framan í
5+1 vörn og átti ég bara fína leik, setti 3 slummur hefði átt að setja 3 í viðbót :) Eftir leikinn missti óskar bjarni sig við eftirlitsdómara leiksins hann Gumma girðir og voru þeir eitthvað ósáttir með dómgæsluna og liðstjóri Val hann Jói Lang hélt því fram að Anton væri Hauka maður afþví að hann og annar leikmaður í haukaliðinu eru félagar. Ég get alveg sagt það að anton og hlynur eru ekki dómarapar sem heldur með haukum og höfum við lent í þeim nokkrum sinnum. Ég ætla ekki að tjá mig um dómgæsluna í kvöld og læt það yfirleit í friði eftir að ég sagði mína skoðun á óla og guðjóni hér um árið og það kom í þættinum hjá valtý Birni.
Annar þá er næsti leikur gegn Fylki á þriðjudaginn og það lið sem fyrr vinnur 2 leiki verða deildarbikarmeistarar. Fjölmennum á það.
Freyr Brynjarsson
06. maí 2006 klukkan 14:46
Það voru gleðifréttir sem ég fékk í gær þegar það kom í ljós að liverpool ákvað að gera nýjan 1 árs samning við Robbie Fowler (GUÐ). Stuðningsmenn liverpool fagna þessu án efa um allann heim og þar á meðal er ég í skýjunum.

Freyr Brynjarsson