Handboltinn komin á fullt
09. október 2006 klukkan 03:54
Nú eru við í Haukum búnir að spila 4 leiki 2 í deild og 2 í evrópukeppni félagsliða. Fyrsti leikurinn í deildinni var gegn ÍR og þó svo að hann hafi tapast þá átti ég ágætis leik og setti 4 mörk í næsta leik sem var gegn ítalska liðinu Conversano á ítalíu og spilaði ég fínan leik varnalega og setti eitt mark þar. Næst spiluðum við gegn Fram á útivelli og þar átti ég góðan leik sérstaklega varnalega enda spila ég aðalega vörn. En svo kom að leiknum sem var í kvöld gegn Conversano á okkar heimavelli ég átti hreint út sagt skelfilegan leik og endaði með nýtinguna 6-0. Sem betur fer var Maggi í svaða stuði í markinu og hélt okkur inn í leiknum og unnum við hann 28-26 og erum komnir áfram. Þetta er án efa lélagasti leikur minn á ferlinum og aldrei hef ég verið með svona slaka nýtingu, það er eins gott að maður sýni eitthvað í næsta leik sem verður gegn Akureyri á heimavelli næsta laugardag.
Annar sem er í fréttum er að Brynjar Dagur er núna veikur og verð ég heima með hann á morgun. Starfsdagur í vinnunni þannig að ég fæ lítið samviskubit við að mæta ekki í vinnu. :)
Erum líklega að fara kaupa í Innri Njarðvík í þessari viku, allavegna setja tilboð. Nánar um það síðar.
Kv.Freyr"ruglnýting"Brynjarsson

Freyr Brynjarsson