Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Silfur í þremur mótum í ár

30. apríl 2006 klukkan 02:13
Nú er nóg komið, einn titill eftir þ.e.a.s. deildarbikarinn og er ég ekki í nokkrum vafa um að við vinnum hann. Erum búnir að vera í 2.sæti í öllum mótum og eitt mót eftir. Þetta minnir á Fram tímabilið 97-98 þegar þeir töpuðu fyrir Val í íslands og bikarúrslitum og glötuðu svo deildartitlinum í síðustu umferð og KA unnu hann.

Er svona að hugsa mín mál þessa daganna hvort þetta verði mitt síðasta tímabil í boltanum. Er búin að vinna allt sem hægt er að vinna nema kannski þennan deildarbikar sem er í boði í fyrsta skipti í ár.
Mitt fyrsta tímabil var 96-97 átti þá einn leik. Valur lenti þá í 7.sæti og duttu út í 8 -liða úrslitum gegn Haukum.
Tímabilin með Val
97-98 varð ég Íslands og bikarmeistari með Val
98-99 9.sæti í deild, engin úrslitakeppni
99-00 9.sæti í deild , engin úrslitakeppni
00-01 7.sæti í deild, duttum út undanúrslitum gegn Haukum
01-02 2.sæti í deild, töpuðum fyrir Ka í úrslitum eftir að hafa leitt einvígið 2-0.
02-03 2.sæti í deild, töpuðum fyrir Umfa í undaúrslitum bikars, duttum út gegn ÍR í undanúrslitum.
03-04 2.sæti í deild, töpuðum gegn fram í undanúrslitum bikars og töpuðum 3-0 gegn Haukum um íslandsbikarinn.

Tímabilin með Haukum
04-05 1.sæti í deild, Íslandsmeistari á afmælisdaginn 5.maí  3-0 sigur gegn ÍBV
05-06 2.sæti í deild, 2.sæti í bikar,  deildarbikar???
Hefði átt að hætt í fyrra, byrja á titlum og enda á titlum!!
Kannski ég taki eitt tímabil í viðbótt og vinn allar þessar dollur í einum rikk!!

Ég og Brynjar Dagur 5.maí 2005 Íslandsmeistarar (good times)
Freyr Brynjarsson
Já þetta er búið að vera magnaður ferill hjá þér, lítið um meiðsli hjá þér og þú fengið að spila skítsæmilega mikið :)

En mitt uppáhaldstímabil var án efa 97-98, bikarinn við Fram og jöfnunarmarkið sem leiddi til framlengingar og svo sigurs.

Svo ætla ég bara óska þér til hamingju með afmælið á morgun ef ske kynni að ég gleymdi að hringja í þig.

/Námsmaðurinn djúpi
04. maí 2006 klukkan 19:01
Gummi Flotti
 
Til hamingju. Tad er ekki alltaf spurningin ad vinna madur a bara ad vera anægdur a fa ad vera med. :)
05. maí 2006 klukkan 13:14

Skrifa athugasemd