Lokahóf GG
10. september 2006 klukkan 20:36
Gærdagurinn var byrjaði ekki vel, horfði á Liverpool skíta upp á bak á móti Everton af öllum liðum. Eftir það fór ég að þökuleggja sem fjáröflun fyrir evrópukeppnina í handbolta með Haukunum og var ég að því til um 17 þá skaust ég til bróður míns og náði í nokkrar gjafir eftir að hann hafði verið í Englandi hjá mömmu okkar. Þegar ég kom heim fór ég í að taka mig til fyrir lokahóf GG, þ.e.a.s. liðið sem ég spilaði með í sumar. Eftir matinn var komið að verðlaunaafhendingu og að sjálfsögðu fékk kallinn verðlaun en ykkur dettur aldrei í hug hver þau voru. Málið var að ég var með 7 mörk í 12 leikjum í sumar en það var annar sem var einnig með 7 mörk nema í 10 leikjum, þannig að hann fékk titilinn markakóngur GG. Þá eru ekki úr miklu öðru að velja. Næst kom verðlaun um Mestu framfarir og viti menn hinn síungi og hæfileikaríki Freyr Brynjarsson fékk þau verðlaun þetta árið. Ég á greinilega framtíðina fyrir mér í fótboltanum.
En ekki er öll sagan um verðlaun úti því ég fékk líka pening fyrir að vera ekki lengur HREINN SVEINN. Já það voru tveir vitleysingar sem vildu halda því fram að ég hafi loksins fenigð að ...... þegar ég gifti mig. Vel heppnað lokahóf í alla staði og svo eftir 12 fylltist staðurinn af liiði af kennarliði en Kellingarnar úr skólanum og kellingarnar úr öðrum leikskólanum hér í bæ voru að djamma og enduðu kvöldið á Salthúsinu þar sem við vorum. Flott kvöld í alla staði. Það eina sem konan var ósátt við var að´þegar við komum heim drapst ég upp í sófa og þar með kvöldinu lokið frá mínum bæjardyrum.
Er núna smá þunnur og er búin að fá mér þynnkumat og er þessa stundna að jafna mig. En nóg af rugli hættum þessu bulli.
kv. sulli bulli
Er núna smá þunnur og er búin að fá mér þynnkumat og er þessa stundna að jafna mig. En nóg af rugli hættum þessu bulli.
kv. sulli bulli
Freyr Brynjarsson
