Hitt og þetta
09. september 2006 klukkan 04:15
Það er orðin soldið langur tími síðan ég sagði eitthvað að viti, kannski hefur það ekki gerst ennþá. Látum reyna á það hér.
Í dag var ég heima með syni mínum þar sem hann var með hita og er enn með. Njörður æskuvinur er mættur til landsins frá Kanada þar sem hann býr. Hann er hér vegna brúðkaups systur sinnar henni Helgu.
Nú fer að líða að því að systir mín hún Brynja Dögg eignist frumburð sinn. Hún er sett á þann 16september.
Á morgun er laugardagur og þá förum við í handboltanum að ganga til góðs fyrir Rauðakrossinn svo eftir það verður farið í að þökuleggja til að fjármagna evrópukeppnina en við förum til Ítalíu til að keppa við gamla liðið hans Gumma Hrafnkels Conversano. Farið verður til Ítalíu 30.september.
Kennslan gengur vel og vonandi að það haldi bara áfram á þessari braut. Vorum með bekkjakvöld síðasta þriðjudag en þar var hann Frank, einn af nemendum mínum kvaddur með veislu og gjöf. Frank greindist með krabbamein í fyrra og fór í dag til Svíþjóðar til að fara í beinmergsaðgerð. Hann kemur svo aftur í feb í skólann.
Reyndar ætlar þetta krabbameinsdæmi í kringum mann aldrei að linna. Nú var ein stúlka í hinum bekknum að greinast með krabbamein í auga en hún hafði áður misst hitt augað vegna krabbameins þegar hún var 1ára. Hún fer á sunnudag í aðgerð í London þar sem allt verðu gert til að bjarga auga hennar. Óska ég þeim báðum alls hins besta í sínum aðgerðum.
Nóg í bili. seja

Freyr Brynjarsson