Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Long time no see or hear

26. ágúst 2006 klukkan 03:30
Já það er orðin nokkuð langt síðan ég bullaði eitthvað á þessari blessuðu síðu, enda kannski ekki margir sem skoða hana. Það helst er nátturulega að ég er orðin giftur maður og á því eiginkonu. Eins og flestir vita þá kemur brúðkaupið í brúðkaupsþáttinum Já á skjá einum. Það átti upphaflega að vera síðasta þriðjudag 22.ágúst en svo kom í ljós að þeir hjá skjá einum höfðu eitt upptökunni úr tölvunni og eru þeir því þessa stundina að endurgera allt, snillingar. En þátturinn verður sýndur næsta þriðjudag 29.8 kl.21:30.

Annars þá er fótboltinn hættur og handboltinn byrjaður. Endaði fótboltann með því skora 7 mörk í 12 leikjum sem verður að teljast fínn árangur miðað við að ég spilaði nær alla leikina á kantinum. Reyndar eiga þetta vera 10 leikir, kom inn á í einum síðustu 5 mín og var á bekknum allann leikinn á móti öðru liði. Handboltinn er byrjaður og er Reykjavík open þessa daganna og erum við búnir að vinna FH, Ír og aftureldingu. Á morgun spilum við svo við Fram og ef við vinnum hann spilum við til úrslita í mótinu. Ég er búin að spila fyrir utan í þessu móti þar sem það vantar nokkra vegna meiðsla og það er bara gaman að því enda er ég ótúrlega fjölhæfur leikmaður. 

Við hjónin erum að skoða íbúðir í Njarðvík og liggur hugurinn þangað þessa stundina. Ég er nátturulega byrjaður að kenna og ákvað að breyta til og hætti sem íþróttakennari og tók að mér umsjónarkennslu í 5.bekk , kenni reyndar einn íþróttatíma í 9.bekk og sund hjá 2.bekk

Nóg í bili seeja later
Freyr Brynjarsson
Geira
 
Gaman að sjá hreyfingu á síðunni ;) ... var einmitt að horfa á þáttinn á skjá 1, kom bara frábærlega út .. bjóst svosem ekki við neinu öðru hehee.
Gaman að heyra að þið eruð farin að skoða í Njarðvíkunum.
Gangi þér vel í "nýju" vinnunni.
30. ágúst 2006 klukkan 03:36

Skrifa athugasemd