Fín helgi að baki
Fótbolti
Á föstudagskvöldinu spilaði ég fótboltaleik með GG gegn Ægi Þorlákshöfn og unnum við 3 -0 og að sjálfsögðu spilaði ég og skoraði fyrsta markið á 4 mín leiksins og er þá komin með 4 mörk í 8 leikjum og hef spilað nánast alla leikina á kantinum, bæði hægri og vinstri kanti.
Handbolti
Á laugardeginum vöknuðu við í fjölskyldunni snemma og héldum af stað í bæinn en ég var að fara spila í strandhandboltamóti sem fram fór í Nauthólsvík. Við áttum fyrsta leik kl. 10 gegn liði sem samanstóð af leikmönnum Fjölni. Við unnum þann leik í nokkuð jöfnum leik.
Reglurnar í strandhandbolta
Það er kannski rétt að koma að reglunum í strandhandbolta. Þær helstu eru þær að ef markmaður skorar/eða marðurinn sem kemur inná fyrir hann þá eru það 2 mörk, það eru líka tvö mörk fyrir sirkusmörk og víti.
Aftur í riðlakeppnina
2.leikurinn var gegn WorldClass en þar var meðal annars Viggóson a.k.a. herra Ísland !! Þessi leikur var engin hindrun fyrir okkur í Haukavélinni. 3.leikurinn var gegn HK kvenna, en ég ákvað að sinna konunni aðeins og sleppti að spila hann og fór í verslunarleiðandur með eiginkonunni. Það var engin aumingi sem kom í minn stað en það var Gilzenegger sem kom og spilaði þennan leik með okkur Haukunum og stóð sig víst bara með stakri príði.
8-liða úrslit
Við mættum liði sem samanstóð af dómurum og þjálfurum í deildinni og var þetta nokkuð öruggt allann tímann.
Undanúrslit
Í undanúrslitum mættum við liði sem hét Tantra en var með leikmönnum HK manna innanborðs og unnum við hann líka án vandkvæða.
Úrslitaleikurinn
Í þessum leik mættum við FH og var þetta hörkuleikur sem vannst bara í lokinn. Semsagt Strandhandboltameistari 2006.
Bío og djamm
Eftir þessa handboltatörn fórum við Hrefna og systir hennar Rakel í bío á myndina Pireats og the carribien 2 og var það bara helv.. góð ræma og hlakka ég til að sjá 3 myndina. Eftir bíoið fórum við á lokahóf strandhandboltans sem var haldið á skemmtistaðnum Viktor. Seinna um kvöldið fórum við svo á Oliver og skemmtum okkur vel þar. Áður en haldið var heim var komið við á Nonna og fengið sér einn vel steiktan bát, (annað en hjá Hlölla þar sem þeir flýta sér svo mikið að áleggið er hrátt) NONNI er langtumbetri. Sem sagt helv. fín helgi að baki.
