2.sætið í ár
23. apríl 2006 klukkan 01:07
Þá er það orðið nokkuð ljóst að við í Haukunum verðum að láta okkur 2.sætið duga þar sem Fram vann Hk í dag. Það er ein umferð eftir en Fram á Víking/fjölni eftir í síðustu umferð og er hægt að bóka sigur hjá frömurum. Okkar eini sjéns á bikar verður deildarbikarinn þar sem 4 efstu liðin spila í úrslitafyrirkomulagi og fáum við Val í undanúrslitum og það lið sem vinnur fyrr 2 leiki fer í úrslit.
Freyr Brynjarsson
