Óvissuferð í gær
28. maí 2006 klukkan 15:51
Já það var farið í óvissuferð með Haukum. Mæting var að Ásvöllum 11:15 og lagt af stað í rútu í Grafavogin þar sem við fórum á jetski og var það hel... gaman. Eftir það var farið að Álverinu í hafnaf. keyrt yfir kvartmílubrautina og þá komum við að svæði sem var í eigu skotfélags hafnafjarðar. Þetta var svaka stuð en þarna fengum við að skjóta skífur sem komu á fullri ferð út úr kofum. Ég tók 12 skot og hitti 7, hitti úr 4 síðustu skotunum. Er alvarlega að hugsa um að fara æfa þetta og komast á Olympíuleikanna
. Eftir þetta fórum við svo í Bláa Lónið. Þar hittum við á FH-ingana en þeir voru komnir í góðan gír eftir daginn. Þegar nokkrir bjórar voru búnir í blá lóninu þá var haldið af stað aftur í bæinn og haldið til Birkis Ívars þar sem við borðuðum dýrindis mat frá veisluvagninum. Það er kokkur sem kemur á bíl og eldar á staðnum, algjör snilld. Ég og Hrefna fórum svo heim eftir matinn þar sem við gátum ekki beðið um pössun 3 laugardaginn í röð.
Kveð í bili saddur og sáttur.
P.s. Gummi þú færð engu ráðið um piparsveinaveisluna
Kveð í bili saddur og sáttur.
P.s. Gummi þú færð engu ráðið um piparsveinaveisluna
Freyr Brynjarsson
