Jarðaför
17. maí 2006 klukkan 19:07
Fór í jarðaför í gær hjá honum John J. Cramer, en hann var maður Ósk systur hans pabba míns. John lést 7.maí síðasliðin af slysförum. Blessuð sé minning hans. Veit að hann og Simbi afi skemmta sér konunglega á sínum stað.
Ég hef ekki farið í margar jarðafarir, fór hjá honum Simba afa fyrir 4 árum. Það á ekki við mig að fara í jarðafarir frekar en ykkur hin kannski. Ég átti hrikalega erfitt með mig og uppgötvaði að gríðarlegrar einbeitingu er þörf við svona lagað. Ég var oft gráti næst en náði að róa mig nokkrum sinnum niður. Það var svo í lokin þegar John var borin út að maður gat ekki meira og tárin
hrundu.
Í jarðaförum er nauðsynlegt að koma með snítibréf, þó þú þekkir viðkomandi lítið eru svona athafnir gríðalega sorgmæddar og smitar annar grátur og sorg oft út frá sér.
Ég, Hrefna og Brynjar Dagur viljum enn og aftur senda Ósk og hennar nánustu alla okkar samúðarkveðjur. Big John var frábær náungi og verður hans sárt saknað.
Verð að minnast á eitt hér lokin og það er að ég fór til Ósk fyrir jarðaförina og þegar ég kom inn sá ég að ég hélt John að klæða sig. Ég missti nærrum því andlitið og hélt í raun að mig væri að sjá ofsjónir. En þetta var þá bróðir hans Johns sem býr í USA. En VÁ hvað þeir eru líkir.

Freyr Brynjarsson

Já þetta var erfiður dagur í gær og þetta er eitthvað sem ég vonast til
að gera sem sjaldnast. Þetta með bróðir hans John er svo satt svona við fyrstu sýn en þegar maður fer að spjalla við hann þá sér maður að það er bara einn John ;) .... besta er samt að Robert er með sama húmor og það er búið að vera yndislegt að geta umgengist hann þessa fyrstu erfiðu daga, verður leitt að sjá á eftir honum út. Hlakka til að hitta á ykkur við ánægjulegra tilefni í sumar og gangi ykkur vel í undirbúningnum.
kv.
Geira