Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Ísland - Frakkland

22. janúar 2007 klukkan 19:47
Þá er það ljóst úrslitaleikur um áframhaldandi þátttöku í HM í handbolta ræðst í kvöld kl. 19. Ísland mætir gríðasterku liði Frakklands. Að mínu mati þarf Íslenska liðið að spila súper 6-0 vörn og markmenn liðsins þurfa að verja 23 bolta. Í sókninni þurfa strákarnir að spila agað og nýta sér liðsmunin þegar þeir eru einum fleiri. Hraðupphlaupin þurfum við að nýta 100% og um leið stoppa þeirra hraðupphlaup. Hlaupa til baka strákar.  Þetta er hægt en ég hef samt ekki mikla trú á að þeir nái að peppa sig í þetta verkefni. Kannski er það kostur að það er leikur strax á eftir sem er upp á líf og dauða.

Handbolta kveða FB
Freyr Brynjarsson

Skrifa athugasemd