Sigur gegn Val
08. maí 2006 klukkan 04:26
Valsarar voru lagði í dag að Ásvöllum og spilaði ég fyrir framan í5+1 vörn og átti ég bara fína leik, setti 3 slummur hefði átt að setja 3 í viðbót :) Eftir leikinn missti óskar bjarni sig við eftirlitsdómara leiksins hann Gumma girðir og voru þeir eitthvað ósáttir með dómgæsluna og liðstjóri Val hann Jói Lang hélt því fram að Anton væri Hauka maður afþví að hann og annar leikmaður í haukaliðinu eru félagar. Ég get alveg sagt það að anton og hlynur eru ekki dómarapar sem heldur með haukum og höfum við lent í þeim nokkrum sinnum. Ég ætla ekki að tjá mig um dómgæsluna í kvöld og læt það yfirleit í friði eftir að ég sagði mína skoðun á óla og guðjóni hér um árið og það kom í þættinum hjá valtý Birni.
Annar þá er næsti leikur gegn Fylki á þriðjudaginn og það lið sem fyrr vinnur 2 leiki verða deildarbikarmeistarar. Fjölmennum á það.
Freyr Brynjarsson

Eg er nefnilega buinn ad blogga.