Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Búin að skrifa undir kaupsamning

20. október 2006 klukkan 21:10
Í dag skrifuðum við Hrefna undir kaupsamning á 91 fermetra íbúð í Njarðvík. Erum komin með lykla og ætlum okkur að vera flutt inn fyrir mánaðamót. Verð samt að segja ykkur söguna á bak við þessa eign. Það voru par sem keyptu hana en hættu svo saman ég komst að því afhverju þau hættu saman í dag þegar við vorum að ganga frá þessu. Peningarnir sem þau áttu að fá gátu ekki farið í gegn í dag vegna þess verðbréfa deild bankans lokaði kl.14. Þetta myndi þá ganga í gegn á mánudaginn. Daman missti sig alveg og varð alveg brjáluð að fá ekki peningana strax, ég var allvarlega að spá í að troða kaupsamningnum upp í r....g.... á henni. Kenndi okkur um að við gerðum þetta viljandi og að við værum að reyna svindla á henni. Það fór svo þannig að fasteignarsalinn fékk alveg nóg af henni að hann tók út á eigin reikningi til að koma henni út.  Við hlóum að þessu eftir á og skildum alveg afhverju gaurinn hætti með henni. Hann hafði á orði að hann hlakkaði til að fara heim til konunar sinnar og þakkaði fyrir að hún væri ekki svona skessa. Algjört bíó.

Annars líf og fjör. Leikur við Fylki á sunnudaginnn

Hann Andri Roland Ford litli bróður er að útskrifast úr Háskólanum á laugardaginn og því verður fámenn veisla. Einnig er hann komin með vinnu hjá Actavis, valinn úr 40 umsóknum. Flottur á því.


Kveð í bili. aju
Freyr Brynjarsson
Til hamingju með íbúðina og brósa þinn :D ... vá, þessi gella greinilega hefur einhver issues.
29. október 2006 klukkan 18:06

Skrifa athugasemd