Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Jafntefli ofl.

16. október 2006 klukkan 21:12
Jafntefli í gær gegn Akureyri, í leik þar sem við áttum að vera löngu búin að klára. Áttum sjens að skora sigurmarkið í síðustu sókn leiksins en boltinn vildi ekki inn. Ég spilaði varnarhlutverk og var svona allt í lagi sáttur en að fá á sig 34 mörk er allt of mikið. Vorum ekki að vinna þetta saman sem lið varnalega. Ég setti 2 úr 2 skotum þannig að nýtingin var 100% betri en í síðasta leik :) Næsti leikur er á miðvikudaginn í bikarnum gegn Haukum 2. Það eru gömlu kempurnar í haukum.

Annars er það að frétta að við erum ganga frá kaupum á íbúð í Innri Njarðvík og það verður vonandi allt klappað og klárt fyrir næstu helgi. Þurfum að punga út 17,1 mills fyrir 91 ferm í fjórbýli. Það er þá með öllu, þ.e.a.s. fasteignagjöldum og öllu því. Þetta er ný íbúð í fjórbýli með örbylgjuofni, ísskáp og uppþvottavél. Þetta er neðri hæð þannig að pabbi verður nýttur í pallagerð eitthvert sumarið. Stefnan er að verða alveg flutt um mánaðamótin okt-nóv.

Ég fer út til Parísar helgina 4-5 nóv að spila í evrópukeppninni gegn Paris Handball og spilum svo við þá heima helgina eftir.

Nóg að gerast.
Freyr Brynjarsson
Til hamingju með nýja heimilið :)

kveðja,
Guðrún & Co
18. október 2006 klukkan 07:35
Njörður
 
Vá til hamingju með þetta.
18. október 2006 klukkan 08:10

Skrifa athugasemd