Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Spakmæli vikunar

Betra er einn bikar en engin.
Deildarbikarmeistara 2006 - Haukar

Leikur dagsins

Leit

Ísland - Frakkland

22. janúar 2007 klukkan 19:47
Þá er það ljóst úrslitaleikur um áframhaldandi þátttöku í HM í handbolta ræðst í kvöld kl. 19. Ísland mætir gríðasterku liði Frakklands. Að mínu mati þarf Íslenska liðið að spila súper 6-0 vörn og markmenn liðsins þurfa að verja 23 bolta. Í sókninni þurfa strákarnir að spila agað og nýta sér liðsmunin þegar þeir eru einum fleiri. Hraðupphlaupin þurfum við að nýta 100% og um leið stoppa þeirra hraðupphlaup. Hlaupa til baka strákar.  Þetta er hægt en ég hef samt ekki mikla trú á að þeir nái að peppa sig í þetta verkefni. Kannski er það kostur að það er leikur strax á eftir sem er upp á líf og dauða.

Handbolta kveða FB
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Komið 2007

05. janúar 2007 klukkan 19:37
Jæja það hlaut að kom að því að árið 2007 kæmi og nú getur maður ekki flúið það lengur að maður hættir að vera 20 og eitthvað og verð þrjátíu og eitthvað næstu 10 árin.

Jólin og áramótin voru mjög ljúf og át maður vel en samt ekki yfir sig. Fékk Hugo Boss ermahnappa frá konunni og syninum. Ég gaf konunni hálsmen og eyrnalokka ásamt því að kaupa handa henni topp sem hún notaði um jólinn. Sonurinn skemmti sér konunglega og sérstaklega á gamlárskvöld og fór ekki að sofa fyrr enn kl.2 og það var bara of mikið fyrir strákinn því hann veiktist um nóttina og hefur ekki enn jafnað sig.

Handboltinn er byrjaður eða æfingarnar byrjaðar. Fyrsti leikur er ekki fyrr en 8.feb.
HM í handbolta sem fram fer í þýskalandi byrjar 19.jan og þar verða nokkrir félagar í eldlínunni og maður vonar að sjálfsögðu að þeir nái sem lengst og ætla ég að spá þeim efstu 5 sætunum.

Bið að heilsa krökkunum í bekknum sem lásu þetta. Go 5.F

Kv. Freyr"Teacher"Brynjarsson
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Allt í volli

08. nóvember 2006 klukkan 21:50
Nú er maður fluttur inn og komin loksins með netið og símann. En ekki tók betra við því undanfarið hefur flætt upp úr niðurfallinu inn í þvottahúsi. Nú er komið í ljós eftir miklar athuganir í dag að það þarf að brjóta upp gólfið og laga verður rörið sem er sprungið og þarf að setja nýtt. Farið verður í þetta á morgun og komust við ekki inn fyrr en seint í kvöld. Það þarf að taka upp parketið og brjóta upp gólfið.  Spurning hvort maður fær ekki einhverjar bætur fyrir þessi óþægindi.

Annars leikur í kvöld gegn HK sem verður að vinnast svo er leikur við Val á sunnudaginn sem verður líka að vinnast. Nóg að gerast. Myndir af íbúðinni koma fljótlega.
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd

Búin að skrifa undir kaupsamning

20. október 2006 klukkan 21:10
Í dag skrifuðum við Hrefna undir kaupsamning á 91 fermetra íbúð í Njarðvík. Erum komin með lykla og ætlum okkur að vera flutt inn fyrir mánaðamót. Verð samt að segja ykkur söguna á bak við þessa eign. Það voru par sem keyptu hana en hættu svo saman ég komst að því afhverju þau hættu saman í dag þegar við vorum að ganga frá þessu. Peningarnir sem þau áttu að fá gátu ekki farið í gegn í dag vegna þess verðbréfa deild bankans lokaði kl.14. Þetta myndi þá ganga í gegn á mánudaginn. Daman missti sig alveg og varð alveg brjáluð að fá ekki peningana strax, ég var allvarlega að spá í að troða kaupsamningnum upp í r....g.... á henni. Kenndi okkur um að við gerðum þetta viljandi og að við værum að reyna svindla á henni. Það fór svo þannig að fasteignarsalinn fékk alveg nóg af henni að hann tók út á eigin reikningi til að koma henni út.  Við hlóum að þessu eftir á og skildum alveg afhverju gaurinn hætti með henni. Hann hafði á orði að hann hlakkaði til að fara heim til konunar sinnar og þakkaði fyrir að hún væri ekki svona skessa. Algjört bíó.

Annars líf og fjör. Leikur við Fylki á sunnudaginnn

Hann Andri Roland Ford litli bróður er að útskrifast úr Háskólanum á laugardaginn og því verður fámenn veisla. Einnig er hann komin með vinnu hjá Actavis, valinn úr 40 umsóknum. Flottur á því.


Kveð í bili. aju
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd

Jafntefli ofl.

16. október 2006 klukkan 21:12
Jafntefli í gær gegn Akureyri, í leik þar sem við áttum að vera löngu búin að klára. Áttum sjens að skora sigurmarkið í síðustu sókn leiksins en boltinn vildi ekki inn. Ég spilaði varnarhlutverk og var svona allt í lagi sáttur en að fá á sig 34 mörk er allt of mikið. Vorum ekki að vinna þetta saman sem lið varnalega. Ég setti 2 úr 2 skotum þannig að nýtingin var 100% betri en í síðasta leik :) Næsti leikur er á miðvikudaginn í bikarnum gegn Haukum 2. Það eru gömlu kempurnar í haukum.

Annars er það að frétta að við erum ganga frá kaupum á íbúð í Innri Njarðvík og það verður vonandi allt klappað og klárt fyrir næstu helgi. Þurfum að punga út 17,1 mills fyrir 91 ferm í fjórbýli. Það er þá með öllu, þ.e.a.s. fasteignagjöldum og öllu því. Þetta er ný íbúð í fjórbýli með örbylgjuofni, ísskáp og uppþvottavél. Þetta er neðri hæð þannig að pabbi verður nýttur í pallagerð eitthvert sumarið. Stefnan er að verða alveg flutt um mánaðamótin okt-nóv.

Ég fer út til Parísar helgina 4-5 nóv að spila í evrópukeppninni gegn Paris Handball og spilum svo við þá heima helgina eftir.

Nóg að gerast.
Freyr Brynjarsson
2 athugasemdir

Handboltinn komin á fullt

09. október 2006 klukkan 03:54
Nú eru við í Haukum búnir að spila 4 leiki 2 í deild og 2 í evrópukeppni félagsliða. Fyrsti leikurinn í deildinni var gegn ÍR og þó svo að hann hafi tapast þá átti ég ágætis leik og setti 4 mörk  í næsta leik sem var gegn ítalska liðinu Conversano á ítalíu og spilaði ég fínan leik varnalega og setti eitt mark þar. Næst spiluðum við gegn Fram á útivelli og þar átti ég góðan leik sérstaklega varnalega enda spila ég aðalega vörn. En svo kom að leiknum sem var í kvöld gegn Conversano á okkar heimavelli ég átti hreint út sagt skelfilegan leik og endaði með nýtinguna 6-0. Sem betur fer var Maggi í svaða stuði í markinu og hélt okkur inn í leiknum og unnum við hann 28-26 og erum komnir áfram. Þetta er án efa lélagasti leikur minn á ferlinum og aldrei hef ég verið með svona slaka nýtingu, það er eins gott að maður sýni eitthvað í næsta leik sem verður gegn Akureyri á heimavelli næsta laugardag.

Annar sem er í fréttum er að Brynjar Dagur er núna veikur og verð ég heima með hann á morgun. Starfsdagur í vinnunni þannig að ég fæ lítið samviskubit við að mæta ekki í vinnu. :)

Erum líklega að fara kaupa í Innri Njarðvík í þessari viku, allavegna setja tilboð. Nánar um það síðar.

Kv.Freyr"ruglnýting"Brynjarsson
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Eignaðist frænda í nótt

25. september 2006 klukkan 17:03
Já hún systir mín Brynja Dögg eignaðist heilbrigðan dreng sem var 16 merkur og 53 cm. Óska henni og Eggerti innilega til hamingju með erfingjann. Þetta verður örugglega prúður og stilltur piltur eins og ég var á yngri árum.   Saklaus
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd

Lokahóf GG

10. september 2006 klukkan 20:36
Gærdagurinn var byrjaði ekki vel, horfði á Liverpool skíta upp á bak á móti Everton af öllum liðum. Eftir það fór ég að þökuleggja sem fjáröflun fyrir evrópukeppnina í handbolta með Haukunum og var ég að því til um 17 þá skaust ég til bróður míns og náði í nokkrar gjafir eftir að hann hafði verið í Englandi hjá mömmu okkar.  Þegar ég kom heim fór ég í að taka mig til fyrir lokahóf GG, þ.e.a.s. liðið sem ég spilaði með í sumar. Eftir matinn var komið að verðlaunaafhendingu og að sjálfsögðu fékk kallinn verðlaun en ykkur dettur aldrei í hug hver þau voru. Málið var að ég var með 7 mörk í 12 leikjum í sumar en það var annar sem var einnig með 7 mörk nema í 10 leikjum, þannig að hann fékk titilinn markakóngur GG. Þá eru ekki úr miklu öðru að velja. Næst kom verðlaun um Mestu framfarir og viti menn hinn síungi og hæfileikaríki Freyr Brynjarsson fékk þau verðlaun þetta árið. Ég á greinilega framtíðina fyrir mér í fótboltanum.Glottandi En ekki er öll sagan um verðlaun úti því ég fékk líka pening fyrir að vera ekki lengur HREINN SVEINN. Já það voru tveir vitleysingar sem vildu halda því fram að ég hafi loksins fenigð að ...... þegar ég gifti mig. Vel heppnað lokahóf í alla staði og svo eftir 12 fylltist staðurinn af liiði af kennarliði en Kellingarnar úr skólanum og kellingarnar úr öðrum leikskólanum hér í bæ voru að djamma og enduðu kvöldið á Salthúsinu þar sem við vorum. Flott kvöld í alla staði. Það eina sem konan var ósátt við var að´þegar við komum heim drapst ég upp í sófa og þar með kvöldinu lokið frá mínum bæjardyrum.
Er núna smá þunnur og er búin að fá mér þynnkumat og er þessa stundna að jafna mig. En nóg af rugli hættum þessu bulli.
kv. sulli bulli
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Hitt og þetta

09. september 2006 klukkan 04:15
Það er orðin soldið langur tími síðan ég sagði eitthvað að viti, kannski hefur það ekki gerst ennþá. Látum reyna á það hér.
Í dag var ég heima með syni mínum þar sem hann var með hita og er enn með. Njörður æskuvinur er mættur til landsins frá Kanada þar sem hann býr. Hann er hér vegna brúðkaups systur sinnar henni Helgu. 
Nú fer að líða að því að systir mín hún Brynja Dögg eignist frumburð sinn. Hún er sett á þann 16september.
Á morgun er laugardagur og þá förum við í handboltanum að ganga til góðs fyrir Rauðakrossinn svo eftir það verður farið í að þökuleggja til að fjármagna evrópukeppnina en við förum til Ítalíu til að keppa við gamla liðið hans Gumma Hrafnkels Conversano. Farið verður til Ítalíu 30.september.

Kennslan gengur vel og vonandi að það haldi bara áfram á þessari braut. Vorum með bekkjakvöld síðasta þriðjudag en þar var hann Frank, einn af nemendum mínum kvaddur með veislu og gjöf. Frank greindist með krabbamein í fyrra og fór í dag til Svíþjóðar til að fara í beinmergsaðgerð. Hann kemur svo aftur í feb í skólann.
Reyndar ætlar þetta krabbameinsdæmi í kringum mann aldrei að linna. Nú var ein stúlka í hinum bekknum að greinast með krabbamein í auga en hún hafði áður misst hitt augað vegna krabbameins þegar hún var 1ára. Hún fer á sunnudag í aðgerð í London þar sem allt verðu gert til að bjarga auga hennar. Óska ég þeim báðum alls hins besta í sínum aðgerðum.

Nóg í bili. seja
Freyr Brynjarsson
Engin athugasemd

Long time no see or hear

26. ágúst 2006 klukkan 03:30
Já það er orðin nokkuð langt síðan ég bullaði eitthvað á þessari blessuðu síðu, enda kannski ekki margir sem skoða hana. Það helst er nátturulega að ég er orðin giftur maður og á því eiginkonu. Eins og flestir vita þá kemur brúðkaupið í brúðkaupsþáttinum Já á skjá einum. Það átti upphaflega að vera síðasta þriðjudag 22.ágúst en svo kom í ljós að þeir hjá skjá einum höfðu eitt upptökunni úr tölvunni og eru þeir því þessa stundina að endurgera allt, snillingar. En þátturinn verður sýndur næsta þriðjudag 29.8 kl.21:30.

Annars þá er fótboltinn hættur og handboltinn byrjaður. Endaði fótboltann með því skora 7 mörk í 12 leikjum sem verður að teljast fínn árangur miðað við að ég spilaði nær alla leikina á kantinum. Reyndar eiga þetta vera 10 leikir, kom inn á í einum síðustu 5 mín og var á bekknum allann leikinn á móti öðru liði. Handboltinn er byrjaður og er Reykjavík open þessa daganna og erum við búnir að vinna FH, Ír og aftureldingu. Á morgun spilum við svo við Fram og ef við vinnum hann spilum við til úrslita í mótinu. Ég er búin að spila fyrir utan í þessu móti þar sem það vantar nokkra vegna meiðsla og það er bara gaman að því enda er ég ótúrlega fjölhæfur leikmaður. 

Við hjónin erum að skoða íbúðir í Njarðvík og liggur hugurinn þangað þessa stundina. Ég er nátturulega byrjaður að kenna og ákvað að breyta til og hætti sem íþróttakennari og tók að mér umsjónarkennslu í 5.bekk , kenni reyndar einn íþróttatíma í 9.bekk og sund hjá 2.bekk

Nóg í bili seeja later
Freyr Brynjarsson
1 athugasemd